Fćrsluflokkur: Bloggar

Opna Rangćingamótiđ í skák 16 ára og yngri

Laugardaginn 22. Nóvember  Kl:11.00 verđur Opna Rangćingamótiđ í skák fyrir 16 ára og yngri haldiđ í Safnađarheimili Odda kirkju á Hellu.
Tefldar verđa 5-6 umferđir (fer eftir ţátttöku)  eftir monrad-kerfi og verđur umhugsunartíminn 10 mín á keppanda í hverri skák.
Ungmennafélagiđ Hekla  sér um keppnishaldiđ og verđur öllum keppendum bođiđ uppá léttar veitingar ađ keppni lokinni. 

Veitt verđa verđlaun fyrir 3 efstu sćtin og allir fá ţátttökuskjal.
Keppt verđur í eftirfarandi flokkum: 
9 ára og yngri     (1-4 bekkur)
10-12 ára            (5-7 bekkur)
13-16 ára          (8-10 bekkur) 

Skráning á stađnum nćgir.

--

Ég ćtla ađ fara međ nokkur börn á mótiđ. Brottför frá Ţjórsárveri kl.10:00 á laugardagsmorgnuninn. Gott er ađ hafa međ sér smávegis nesti.

Ţeir sem vilja far á mótiđ međ mér geta haft samband í síma 860-1895 - fyrstir koma fyrstir fá.

Bestu kveđjur, Ágúst Valgarđ


Seinasta skákćfing tímabilsins

Skólinn klárast víst á hádegi nćsta miđvikudag - og einhverjir nemendur á ferđalagi. Ţađ er ţví ljóst ađ seinasta skákćfingin var núna í dag.

Á ćfingunni í dag fengu nemendur 44 blađsíđna útprentađa skákvinnubók međ skákćfingum. Viđ unnum í ţessu hefti í dag - og ţau taka ţađ svo međ sér inn í sumariđ. Gott ađ grípa í ţađ á rigningardögum - sem vonandi verđa fáir í sumar :-)
 
Kćrar ţakkir fyrir samvinnuna um ţetta verkefni um skákćfingar, bćđi börn og fullorđnir. Ég vil ţakka sérstaklega formönnum ungmennafélaganna, Guđmundi fráfarandi skólastjóra Flóaskóla, Huldu deildarstjóra og öđru starfsfólki Flóaskóla fyrir ađstođ og hvatningu.
 
Gleđilegt sumar! 

Fréttir af seinustu ćfingum

Nú fer ađ fćrast fjör í leikinn. Á seinustu tveim ćfingum lukum viđ yfirferđ um hvern taflmann fyrir sig og hafa ţeir ţví allir veriđ kynntir til sögunnar. Ţar sem ţessi grundvallaratriđi eru í höfn getum viđ nú fariđ ađ rćđa fleira sem snýr ađ herkćnsku og liđsskipan. Auđvitađ kunnu allir krakkanir mannganginn fyrir - en ţađ er engu ađ síđur ýmislegt sem viđ höfum lćrt um hvern taflmann, sem á eftir ađ koma sér vel síđar. 

Ég vil einnig ađ ţiđ vitiđ ađ hegđun og eftirtekt hefur veriđ til fyrirmyndar. Ţađ hefur t.d. veriđ ánćgjulegt ađ sjá hvernig ţau sem meira kunna hafa sýnt ţolinmćđi ţegar viđ höfum fariđ yfir einfaldari atriđin fyrir ţá sem minna kunna. 

Til ađ stikla á stóru um seinustu ćfingar ţá höfum viđ t.d. rćtt kosti ţess ađ hafa riddara nćr miđborđinu, ţví ţá valdar hann miklu fleiri reiti. Einnig höfum viđ ćft okkur smávegis í ţví ađ nota kóng í endatöflum. Viđ erum einnig farin ađ ćfa einföld mát og fjallađ smávegis um pattstöđur.

Loks erum viđ búinn ađ fjalla um hvernig skynsamlegt er ađ tefla byrjanir. Viđ erum búin ađ kynna 5 triđi sem er gott ađ hafa til viđmiđunar í fyrstu leikjum skákar:

 

  1. Ná völdum á miđborđinu.
  2. Koma mönnunum út eins fljótt og hćgt er, ljúka liđsskipan.
  3. Hróka eins fljótt og hćgt er.
  4. Ekki leika drottningunni of fljótt út. 
  5. Forđast ađ leika sama manninum oftar en einu sinni áđur en liđsskipan er lokiđ.
Viđ tókum svo dćmi um skákir ţar sem byrjanir voru tefldar illa eđa vel.
 
Núna eru ađeins ţrjár ćfingar eftir. Á ţeim munum leggja áherslu á:
  • Reglurnar 5 um byrjanir 
  • Upprifjun á ţví sem komiđ er - ţannig festast atriđin betur í minni
  • Ađ allir í hópnum kunni ađ máta međ tveim hrókum, drottningu eđa einum hrók
  • Fjalla um gafflanir
  • Ef tími vinnst til, leppanir og ađ máta međ tveim biskupum
Ef nćgur áhugi er fyrir hendi vil ég gjarnan halda ćfingum áfram nćsta haust, í samvinnu viđ Ţjótanda og Flóaskóla. Ţessar ćfingar hafa gengiđ vel. Bćđi ég og börnin skemmtum okkur konunglega. Ţađ vćri ţví afbragđ ef ţađ finnst flötur á ađ halda ţessu áfram nćsta vetur.
 

 


Ćfingin í dag 23.apríl

Náđum góđri ćfingu í dag. Rifjuđum upp ýmislegt varđandi biskupinn og kynntum svo drottninguna til sögunnar. Rćddum einnig hvernig skákin er hugaríţrótt. Viđ taflborđiđ eru allir jafnir, hvort sem ţeir eru stórir, litlir, breiđir eđa mjóir.

Sumarnámskeiđ í skák 2014

Skákakademía Reykjavíkur og Skákskóli Íslands efna til tveggja skáknámskeiđa í sumar fyrir krakka fćdda 2001-2007. Hvort námskeiđ er vika í senn. 

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar

Viđ í Forsćti 3 erum búin ađ skrá Margréti Maríu og Sigurjón Óla á námskeiđiđ 30.júní - 4.júlí. Ef einhver annar hér í Flóahreppi hefur áhuga ţá getum viđ eflaust samnýtt ferđir, látiđ okkur vita.


Páskaeggjamót Ţjótanda - Úrslit

Laugardaginn 12.apríl kl.10 komu  8 hressir krakkar saman í Ţjórsárveri til ađ tefla á Páskaeggjamóti Ţjótanda 2014.

Úrslit urđu ţannig:

 2014TjotandiPaskaeggjamotNidurstada

Margar skákir voru afar spennandi og allir skemmtu sér vel. Í lokin fengu allir keppendur lítiđ páskaegg auk ţess sem Agnes, Dagur og Sigurjón fengu sérstök verđlaun fyrir ađ sigra á hverju skólastigi fyrir sig.

Smelltu hér til ađ sjá myndir frá mótinu. 


Skólaskákmót Árnessýslu - úrslit

Skólaskákmót Árnessýslu fór fram föstudaginn 11.apríl kl.14 í Fischersetrinu á Selfossi. Keppt var í yngri (1-7 bekkur) og eldri (8-10 bekkur) flokk.

Úrslit yngri flokk:

2014ArnessyslaSkolaskakmotNidurstadaYngri

Úrslit eldri flokk:

2014ArnessyslaSkolaskakmotNidurstadaEldri 

Tveir efstu í hvorum flokki öđlast ţáttökurétt á kjördćmismótinu sem verđur haldiđ síđar í ţessum mánuđi. 

Hér má sjá myndir frá mótinu. 


Árnessýslumót í skólaskák

Mótiđ fyrir Árnessýslu fer fram í Fischersetri, Austurvegi 21, Selfossi, föstudaginn 11. apríl,  Kl. 14:00. Mótinu líkur á milli kl.16 og 17.  Tímamörk verđa 15 mín. og tefldar verđa 7 umferđir.  

Teflt verđur í tveimur flokkum: eldri, 8.-10. bekkur og  yngri, 7. bekkur og yngri. Hver skóli hefur rétt á ađ senda tvo keppendur í hvorn flokk.

Tveir efstu keppendur úr hvorum flokki vinna sér síđan rétt til ađ tefla á kjördćmismóti Suđurlands sem fer fram undir lok apríl.  Á ţví móti verđa fulltrúar frá Vestmannaeyjum, Ragnárţingi og Árnessýslu. Efstu keppendur kjördćmamótsins verđa síđan fulltrúar Suđurlands í  landsmótinu í skólaskák.

Mótsstjórar verđa Björgvin S. Guđmundsson og Ágúst Valgarđ Ólafsson

Sigurjón Óli Ágústsson og Dagur Fannar Einarsson  munu keppa fyrir Flóaskóla í yngri flokk ţar sem ţeir sigruđu á yngsta og miđstigi á skólaskákmóti Flóaskóla.

Ţegar ţetta er skrifađ vantar hinsvegar keppanda frá Flóaskóla fyrir eldri flokk (8-10 bekk), ţar sem ţau sem urđu í efstu sćtunum gefa ekki kost á sér af ýmsum ástćđum. Röđin á skólaskákmótinu á efsta stig var svona:

  1. Sunna Skeggjadóttir
  2. Magnús Freyr Bárđarson
  3. Ćgir Atlason
  4. Hannes Höskuldsson
  5. Hólmar Höskuldsson
  6. Agnes Björg Birgisdóttir
  7. Árni Már Ólafsson
  8. Ţórarinn Guđni Helgason
  9. Unnar Freyr Bjarnarson
  10. Hanna Kristín Ólafsdóttir
  11. Ásbjörn Pálmason
  12. Alexander Kristjánsson
  13. Ýmir Atlason
  14. Baldur Ţór Bjarnarson
Hér međ er auglýst eftir ţví ađ einhverjir tveir úr ţessum hóp sem vilja keppa á morgun hafi samband viđ Ágúst í síma 860-1895 svo ađ Flóaskóli sé međ fulltrúa á efsta stigi. Fyrstir koma, fyrstir fá :-)
 
Svo minnum viđ á hrađskákmótiđ í Ţingborg kl.20 í kvöld, fimmtudagskvöld. 

Peđ og hrókar

Ćfingin í dag gekk vel. Viđ rifjuđum upp ţađ helst frá seinustu ćfingu varđandi peđin. Svo rćddum viđ hrókinn, ađ hann telst jafn sterkur og 5 peđ (5 stig) og tókum nokkrar ţrautir og ćfingar međ hrókum.

« Fyrri síđa

Um bloggiđ

Skákstarf Þjótanda Flóahreppi

Höfundur

Ágúst Valgarð Ólafsson
Ágúst Valgarð Ólafsson

Skákstarfi Flóaskóla í Flóahreppi og fyrir ungmennafélagið Þjótanda.

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband